Með stuðningi Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrímssonar

Það er sorglegt en þó satt að slátrun á almenningi, konum og börnum í Írak var gerð með yfirlýstum stuðningi Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrímssonar. Pyntingarnar sem Bandaríkjamenn hafa stundað þvert á alla alþjóðasamninga eru á ábyrgð þeirra sem stutt hafa stríðsreksturinn í Írak. Áðurnefndir sómamenn drógu Íslensku þjóðina ofan í ofbeldissvaðið með svo ruddafengnum hætti að það hlýtur að jaðra við landráð. Íslenska þjóðin sem þó gat amk. fram að þessu óhæfuverki, verið stolt af því að fara aldrei með ofbeldi á hendur annarra þjóða, situr uppi með svívirðuna. Skyldu ofbeldismenn á Íslandi aldrei þurfa að standa reikningsskil gjörða sinna ef brotin eru bara nógu stór?
mbl.is Bush ver harkalegar yfirheyrslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Mikið skelfingar rugl er þetta þú hlýtur að vera menntamaður eða rök þrota.

Ragnar Gunnlaugsson, 29.5.2009 kl. 17:30

2 identicon

ÞAÐ VONA ÉG AÐ STRÍÐSGLÆPAMENNIRNIR DAVÍÐ ODDSSON OG HALLDÓR ÁSGRÍMSSON EIGI EFTIR AÐ VERÐA DREGNIR FYRIR STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓL.ÞESSIR TVEIR KUMPÁNAR ERU EKKERT ANNAÐ EN LANDRÁÐAMENN,LEGG TIL AÐ ÞEIR FARI Í GAPASTOKK FYRST,OG KAGHÝDDIR AF ÞJÓÐ SINNI OG  SÍÐAN TEKNIR FYRIR HJÁ STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLNUM.SÁ SVÍVIRÐILEGI SKAMMARBLETTUR SEM ÞESSIR TVEIR FÝRAR HAFA GERT ÞJÓÐ SINNI,VERÐUR ALDREI HREINSAÐUR.HAFI ÞEIR ÆVARANDI SKÖMM FYRIR.ÞJÓÐIN ÆTTI AÐ TAKA ÞÁ HÖNDUM OG KOMA ÞEIM Í HENDUR STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLSINS.ÞEIM Á EFTIR AÐ ILLILEGAST AÐ HEFNAST,ÉG TRÚI Á LÍFSINS KARMA.

Númi (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 17:34

3 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Geturðu sagt þetta aftur Númi, bara aðeins hærra!?!

Páll Geir Bjarnason, 30.5.2009 kl. 03:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband